Styðjandi uppeldi
Morgunrútínan - Cute food þema
Morgunrútínan - Cute food þema
Myndunum er raðað upp í þeirri röð sem barnið á að framkvæma verkefnin og barnið setur síðan mynd að eigin vali í kassann fyrir neðan þegar það hefur lokið við hvert verkefni. Sjónræn kerfi geta oft hjálpað börnum sem eiga erfitt með að skipuleggja verkefnin sín og æfir sjálfstæði þeirra í stað þess að fá munnlegar áminningar.
Kerfið kemur útprentað og plastað en óklippt. Þú klippir sjálf(ur/t).
Best er að nota hvítt kennaratyggjó til að festa myndir/verkefni á réttan stað eða franskan rennilás.
Öll kerfin okkar eru úr gæða 200gr pappír og þykku plasti fyrir góða endingu.
Hægt er að sækja eða fá sent.
Í sumum tilfellum er ætlunin að nota kerfið sem umbunarkerfi og fylgja því leiðbeiningar um notkun umbunarkerfa með öllum keyptum kerfum.