Terms of service

 Afgreiðsla og afhending:

 Pöntun er afgreidd þegar greiðsla hefur borist. Kaupandi fær senda staðfestingu í tölvupósti þegar pöntun hefur verið staðfest. Hægt er að velja um að fá vöruna senda að sækja. Pantanir eru sendar með Íslandspósti eða Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra um afhendingu. Styðjandi uppeldi ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Styðjandi uppeldi til viðkomandi sendingaraðila er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Pantanir er hægt að sækja í Styðjandi uppeldi, staðsett í Borgargerði 4 á mánudögum og miðvikudögum milli 17 og 19 eða eftir samkomulagi.

Afhendingartími innanlands er að jafnaði 2-7 dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Pöntunin tekur vanalega 1-5 virka daga að berast með póstinum. 
Ef varan er ekki til á lager verður haft samband og tilkynnt um nýjan afhendingartíma. 

Verð
24% VSK er innifalinn í verði vörunnar og reikningar eru gefnir út með VSK. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur. Styðjandi uppeldi áskilur sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram. Athugaði að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Greiðslur
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika; greiðslukort og millifærslu. Einnig geta fyrirtækið óskað eftir að láta senda reikning og er þá best að hafa samband í gegnum tölvupóst dora@stydjandiuppeldi.com. Þú getur greitt fyrir vöruna í vefversluninni með kreditkorti í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd.

Trúnaður
Seljandi lofar kaupanda fullum trúnaði um þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.