Styðjandi uppeldi
Dagsverkin með myndum - 19 verkefni
Dagsverkin með myndum - 19 verkefni
Couldn't load pickup availability
Spjöldunum er raðað upp eftir hentisemi og barnið færir broskallinn frá hægri dálk yfir á vinstri dálk þegar verkefni er lokið. Sjónræn kerfi geta oft hjálpað börnum sem eiga erfitt með að skipuleggja verkefnin sín og æfir sjálfstæði þeirra í stað þess að fá munnlegar áminningar.
Hægt er að velja um að fá kerfið útprentað og plastað en óklippt og þú klippir þá sjálf(ur/t). Einnig er hægt að fá það fulltilbúið með frönskum rennilás eða kennaratyggjó.
Best er að nota hvítt kennaratyggjó til að festa myndir/verkefni á réttan stað eða franskan rennilás.
Öll kerfin okkar eru úr gæða 200gr pappír og þykku plasti fyrir góða endingu.
Hægt er að sækja eða fá sent.
* Ef þið viljið broskalla í öðrum lit sem fylgir öðru kerfi en því sem þið pantið megið þið senda á dora@stydjandiuppeldi.com og óska eftir öðrum lit